Vefbókasafnið er samstarfsverkefni íslenskra almenningsbókasafna.
Meginmarkmið þess er að auðvelda aðgengi almennings að efni á
Veraldarvefnum. Það er gert á þann hátt að bókaverðir nýta kunnáttu sína,
þekkingu og reynslu af uppbyggingu safnkosts á bókasöfnum til að velja,
safna og efnisflokka vefsíður og raða þeim upp í ákveðið kerfi.
Þannig þurfa notendur safnsins ekki að reiða sig á leitarvélar sem oft á
tíðum skila þúsundum síðna sem síðan þarf að velja úr.
Áhersla er lögð á að safna íslensku efni en þar sem það þrýtur eru teknar
með erlendar síður. Ekki er reynt að safna mjög mörgum síðum, en í þess
stað er lögð áhersla á að síðurnar innihaldi miklar upplýsingar sem líklegt
er að komi sem flestum að gagni.
Þegar síða hefur verið valin, er hún flokkuð samkvæmt Dewey flokkunarkerfinu
sem notað er á bókasöfnunum en auk þess er síðunum gefin
efnisorð skv. Kerfisbundnum efnisorðalykli sem Margrét Loftsdóttir og Þórdís T.
Þórarinsdóttir tóku saman.
Síðurnar eru leitarhæfar eftir titli, efni og veffangi. Hægt er að
skoða efnisorðalista í stafrófsröð og helstu efnisflokka.